Námskeið fyrir fósturforeldra

Sérhæft námskeið fyrir fólk sem er með börn í fóstri vegna ættartengsla eða annarra tengsla

20 apr. 2017

Barnaverndarstofa var með námskeið dagana 3. og 31. mars sl. fyrir fólk sem er með börn í fóstri vegna ættartengsla eða annarra tengsla. Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um fóstur nr. 804/2004 ber þeim, sem sækja um að taka barn í fóstur að sækja námskeið á vegum Barnaverndarstofu áður en leyfi er veitt.

Dagana 3. og 31. mars sl. var Barnaverndarstofa með sérhæft námskeið fyrir fólk sem er með börn í fóstri vegna ættartengsla eða annarra tengsla. Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um fóstur nr. 804/2004 ber þeim, sem sækja um að taka barn í fóstur að sækja námskeið á vegum Barnaverndarstofu áður en leyfi er veitt. Markmið með námskeiði er annars vegar að leggja mat á hæfni umsækjanda og hins vegar að veita umsækjanda nauðsynlega þjálfun og undirbúa hann undir hlutverk sitt.

 

Barnaverndarstofa hefur afnotarétt af fræðsluefni sem nefnist Foster-Pride sem er bandarískt að uppruna. Námskeiðið hefur verið haldið frá árinu 2004 á vegum Barnaverndarstofu en var nú í fyrsta sinn sérsniðið að þörfum þeirra sem eru með börn sér nákomin eða skyld í fóstri. Um er að ræða grunnnámskeið byggt á Foster-Pride sem ætlað er að veita þekkingu og skilning á þáttum sem flestir fósturforeldrar takast almennt á við. Auk þess var á námskeiðinu lögð áhersla á þætti sem skipta máli fyrir fósturforeldra barna sem eru þeim tengd eða skyld.

Tilgangur og markmið námskeiðsins var að efla þekkingu og skilning þátttakenda á ástæðum þess að barnið þarf að flytja frá foreldrum og þörf barnsins fyrir aukna umönnun. Fósturforeldrar sinna mikilvægu verkefni og hafa hlutverki að gegna gagnvart fjölskyldu barnsins og þeirri barnaverndarnefnd sem fer með mál barnsins. Því er nauðsynlegt að þeir hafi skilning á samstarfi innan teyma auk lágmarks þekkingar á störfum barnaverndarnefnda, lagaumhverfi og hlutverki fósturforelda. Á námskeiðinu var fjallað um þörf barns fyrir öryggi og stöðugleika auk þess sem farið var yfir ferli sorgarúrvinnslu. Þá var rætt um hvað í því felst að taka við umsjá barna annarra, samstarf innan fjölskyldu og breytingar á hlutverkum innan fjölskyldu við fósturráðstöfun. Einnig var umfjöllun um hlutverk hins opinbera í fósturráðstöfun.

Námskeiðið sóttu 18 einstaklingar (fósturforeldrar) sem eru með börn í fóstri sem tengjast þeim fjölskylduböndum, s.s. ömmur og afar en einnig fósturforeldrar sem eru með önnur tengsl við fósturbörn sín. Góðar umræður sköpuðust á námskeiðinu og töldu þátttakendur mikilvægt að fá slíka fræðslu auk þess að fá tækifæri til að hitta aðra fósturforeldra í svipaðri stöðu. Áætlað er að endurtaka námskeiðið á haustmánuðum og árlega í samræmi við eftirspurn. Tölulegar upplýsingar Barnaverndarstofu benda til þess að undanfarin ár hafi aukist hlutfall fósturráðstafana til fósturforeldra sem tengjast börnum fjölskylduböndum eða eru með önnur tengsl. Um er að ræða allt að 37% fósturráðstafana.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica