Tilkynningar til barnaverndarnefnda í febrúar

6 apr. 2006

Í febrúar bárust barnaverndarnefndum landsins 524 tilkynningar varðandi 497 börn. Fjöldi tilkynninga í janúar var 585. Tilkynningum hefur því fækkað um 10% milli mánaða.
Ef fjöldi tilkynninga er borinn saman við sama mánuð í fyrra kemur í ljós að þeim hefur fjölgað um tæp 32% milli ára (barnaverndarnefndum bárust 398 tilkynningar í febrúar 2005).

65% tilkynninganna (339) komu frá höfuðborgarsvæði en 35% frá landsbyggðinni (185). Af þessum 524 tilkynningum bárust 36 tilkynningar í gegnum neyðarlínuna 1-1-2.

Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 26,0% voru vegna vanrækslu, 13,5% vegna ofbeldis, 59,7% vegna áhættuhegðunar barna og 0,8% vegna þess að heilsu eða líf ófædds barns var í hættu.

Flestar tilkynningar komu frá lögreglu og voru 53,4% allra tilkynninga. Um 12% tilkynninga bárust frá skóla/sérfræðiþjónustu/fræðslu- eða skólaskrifstofu en aðeins í 0,6% tilvika leitaði barnið sjálft til barnaverndarnefndar.

Hér má sjá nánari sundurliðun á tilkynningum í febrúar

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica