Samanburður á fyrstu 9 mánuðum áranna 2005 og 2006

20 des. 2006

Þegar fyrstu níu mánuðir áranna 2005 og 2006 eru bornir saman kemur í ljós að tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað úr 3.648 í 4.779 tilkynningar. Aukningin milli ára er 31%. Þessa aukningu má einkum skýra með fjölda lögregluskýrslna. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2005 bárust barnaverndarnefndum 1.747 tilkynningar frá lögreglu en á árinu 2006 voru þær 2.659.

Tilkynnt var um 3.576 börn á fyrstu níu mánuðum ársins 2005 en fjöldi barna var 4.427 árið 2006. Tilkynnt hefur því verið um 24% fleiri börn á fyrstu 9 mánuðum ársins 2006 en 2005.

Umsóknum um meðferð hefur einnig fjölgað á þessum tímabili. Umsóknir voru 129 á fyrstu níu mánuðum ársins 2005 en 2006 voru þær 146. Umsóknum hefur því fjölgað um 13%. Auk þess hefur umsóknum um fóstur fjölgað úr 79 í 100. Aukningin er 27%.

Hér má skoða sundurliðun á þessum tölum.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica