Málþing Ís-Forsa 2010
Samtök um rannsóknir í félagsráðgjöf, Ís-Forsa, er hluti norrænna systursamtaka sem vinna að framgangi rannsókna og fagþróunar í félagsráðgjöf. Stjórn Ís-Forsa veitti í fyrsta sinn viðurkenningu fyrir framúrskarandi meistararitgerð á sviði velferðarmála á árlegu málþingi sínu sem haldið var 11. maí 2010, þar sem fjallað var um gæðavísa og matsaðferðir í velferðarþjónustu. Sérstök nefnd metur ritgerðir sem tilnefndar eru af háskólakennurum.Þrír einstaklingar sem luku meistaraprófi á sviði velferðarmála árið 2009 með framúrskarandi árangri voru tilnefndir. Þeir voru Óskar Dýrmundur Ólafsson fyrir ritgerð sína, Akureyrarlíkanið. Aðferðir og áhrif stjórnunar á samþættingu í þjónustu Akureyrarbæjar, Steinunn K. Jónsdóttir fyrir ritgerð sína, Sérhannað húsnæði aldraðra: Stefnumótun og löggjöf á Íslandi 1983-2008 og Soffía Stefanía Egilsdóttir sem hlaut viðurkenningu Ís-Forsa, fyrir ritgerð sína, Samskipti aðstandenda og starfsfólks á hjúkrunarheimilum: Að dansa í takt.
Með veitingu viðurkenningarinnar vill stjórn Ís-Forsa stuðla að viðgangi framhaldsnáms á sviði velferðaþjónustu og að viðurkenning fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á meistarastigi geti orðið meistaranemum hvatning og stuðlað að vandaðri nýsköpun þekkingar.
Þeir sem vilja kynna sér nánar efni ritgerðanna er bent á að hægt er að skoða/lesa þær á www.skemman.is