PMT - foreldrafærni er flutt á Barnaverndarstofu!
Innleiðing PMTO á Íslandi byggist nú á samvinnu miðstöðvarinnar, Barnaverndarstofu, höfuðstöðva PMTO í Bandaríkjunum og þeirra svæða sem tileinka sér aðferðina hérlendis.
Miðstöð PMT-FORELDRAFÆRNI er flutt úr Hafnarfirði og er nú rekin af Barnaverndarstofu. Innleiðing PMTO á Íslandi byggist nú á samvinnu miðstöðvarinnar, Barnaverndarstofu, höfuðstöðva PMTO í Bandaríkjunum og þeirra svæða sem tileinka sér aðferðina hérlendis. Verkefnið hóf göngu sína á Íslandi árið 2000 og í dag er PMTO meðferð stunduð af um 40 meðferðaraðilum í 9 sveitarfélögum. PMTO meðferðarúrræðið er ætlað foreldrum og öðrum sem koma að uppeldi barna. Uppalendur fá í hendur ákveðin verkfæri sem gera þeim kleift að breyta og bæta hegðun barna sinna og þannig stuðla að bættri aðlögun þeirra á heimili, í skóla og í samfélaginu almennt. Úrræðið, sem er sannprófað meðferðarúrræði, er þróað af Dr. Gerald Patterson og Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene, Oregon í Bandaríkjunum og hefur nú verið innleitt víða um heim bæði í Bandaríkjnunum og í Evrópu.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Sigmarsdóttir forstöðumaður PMTO.