Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu fyrstu sex mánuði áranna 2013 og 2014

Tilkynningum fjölgar um 10,4% - flestar tilkynningar til barnaverndarnefnda eru vegna gruns um vanrækslu foreldra gagnvart börnum sínum.

4 sep. 2014

Í þessari samantekt Barnaverndarstofu er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2013 og 2014. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu sex mánuði áranna  2013 og 2014.

Hér er hægt að finna samantektina.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 10,4% á fyrstu 6 mánuðum ársins 2014 miðað við sama tímabil árið á undan. Fjöldi tilkynninga var 4.779 á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, en 4.329 fyrir sama tímabil árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 9,8% en fjölgunin var 11,6% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar fyrstu sex mánuði ársins 2014 voru vegna vanrækslu eða 40,0% tilkynninga. Hlutfall tilkynningar vegna vanrækslu gagnvart börnum fyrir sama tímabil árið á undan var 36,4% af heildarfjölda tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis gagnvart börnum var 22,4% á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, en  27,0% fyrir sama tímabil árið á undan.  Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 37,1% á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, en 35,8% fyrir sama tímabil árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu lækkaði úr 0,8% á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 í 0,6% á fyrstu sex mánuðum ársins 2014.

Hlutfall tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu gagnvart börnum og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu var 10,2% á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, en 9,1% á fyrstu sex mánuðum ársins 2013. Í tilkynningum um ofbeldi gagnvart börnum var hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða 5,0%  á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, en 5,6% fyrir sama tímabil árið á undan.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Umsóknum um Stuðla fjölgaði fyrstu sex mánuði ársins 2014 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 24 fyrstu sex mánuði ársins 2014, en 18 fyrstu sex mánuði árið á undan. Umsóknir um meðferðarheimili voru 11 fyrstu sex mánuðina bæði árin. Alls bárust 47 umsókn um MST fyrstu sex mánuði ársins 2014, en 44 fyrir sama tímabil árið á undan.

Beiðnir til Barnaverndarstofu um fósturforeldra fækkaði úr 74 í 67 á umræddu tímabili.

Í Barnahúsi fækkaði rannsóknarviðtölum úr 151 fyrstu sex mánuði ársins 2013 í 92 fyrstu sex mánuði ársins 2014. Skýrslutökum fækkaði úr 60 á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 í 27 fyrir sama tímabil árið 2014 en könnunarviðtölum fækkaði úr 91 í 65 milli ára. Stúlkur voru í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl, 69,6% fyrstu sex mánuði ársins 2014, en 72,2 fyrir sama tímabil árið á undan. 


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica