112-dagurinn er í dag - öryggi og velferð barna og ungmenna í brennidepli

Alls bárust Neyðarlínunni yfir fimm þúsund tilkynningar vegna barna í vanda fyrstu tíu heilu árin eftir að samstarf 112 og Barnaverndarstofu um neyðarsímsvörun vegna barnaverndar hófst.

11 feb. 2015


112 er helsti farvegurinn fyrir almenning til að koma að tilkynningum til barnaverndaryfirvalda um allt land. Langflestar tilkynningar berast hins vegar frá lögreglu og ýmsum stofnunum innan velferðarkerfisins. Stór hluti málanna sem berst frá lögreglu á þó uppruna sinn í símtali til 112 þar sem aðstoðar er óskað vegna til dæmis heimilisofbeldis, kynferðisofbeldis eða annars ofbeldis.

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi og velferð barna og ungmenna. Dagurinn var skipulagður í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og hyggst fjöldi viðbragðsaðila heimsækja grunnskóla landsins í dag til að ræða við nemendur um neyðarnúmerið, slysavarnir og skyndihjálp. Víða verður lögð áhersla á að kynna 112 sem barnaverndarnúmerið. Þá fræðir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins börn í 4. bekk um neyðarnúmerið, skyndihjálp og slysavarnir.

Samstarf Neyðarlínunnar og Barnaverndarstofu um símsvörun fyrir barnaverndarnefndir hófst árið 2004. Símtöl voru fá fyrsta árið. Aðeins bárust 221 tilkynningar 2005 en þeim fjölgaði síðan jafnt og þétt. Símtöl voru langflest á árunum 2009-2011, á sjöunda hundrað ár hvert. Þeim fækkaði síðan talsvert 2012 og 2013 en fjölgaði um 20 prósent í fyrra. Nokkuð er um að börn hringi sjálf og leiti aðstoðar en algengast er að foreldrar og aðrir ættingjar hafi samband. Langoftast er tilkynnt um áhættuhegðun barna og ungmenna. Í því felst oft að barn hafi leiðst út í neyslu vímuefna, átök hafi orðið á heimilinu, barnið sýni óstjórnlega hegðun og strjúki jafnvel af heimilinu. Einnig er algengt að tilkynnt sé um ofbeldi og vanrækslu.

Tilkynningar í gegnum 112 eru aðeins um sex prósent allra tilkynninga vegna barnaverndar en þær voru 8.893 í fyrra samkvæmt skýrslu sem birt hefur verið á vef Barnaverndarstofu, Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir hins vegar að um afar mikilvæg tilfelli sé að ræða. „Sum þessara mála fengjum við jafnvel ekki inn á borð nema vegna samstarfsins við 112. Þessar tilkynningar berast yfirleitt þegar atburðurinn á sér stað sem gefur tilefni til að bregðast við um leið,“ segir Bragi.

 „Tilgangurinn með samstarfinu við 112 var að greiða fyrir því að almenningur gæti fullnægt tilkynningarskyldu sinni og að auðvelda fólki að koma á framfæri ábendingum og upplýsingum tafarlaust, hvenær sólarhringsins sem er. Samstarfið hefur reynst afar vel og hefur orðið öðrum þjóðum í Evrópu fyrirmynd,“ segir Bragi.

Athöfn í Björgunarmiðstöðinni kl. 16 – ungt fólk fær viðurkenningar

Við athöfn í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 verða veitt verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2014, neyðarverði ársins verður veitt viðurkenning, skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur og loks má nefna að ungum innhringjanda í 112 verður veitt sérstök viðurkenning. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flytur ávarp við athöfnina. Þá flytja Dr. Gunni og Friðrik Dór 112-lagið með aðstoð Viðbragðssveitarinnar en Dr. Gunni samdi lagið og frumflutti á Barnamenningarhátíð á síðasta ári.

Samstarfsaðilar 112-dagsins

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica