• Utlit-a-namskeid-_agust.001-10

Ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum

16 nóv. 2023

Utlit-a-namskeid-_agust.001-10

Barna- og fjölskyldustofa hefur framleitt ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Þessi námskeið eru ætluð öllum þeim sem koma að starfi með börnum upp að 18 ára aldri. 

Í þessum námskeiðum er farið yfir möguleg einkenni kynferðisofbeldis, tilkynningaskylduna, þau viðbrögð sem eru mikilvæg verði starfsfólk þess áskynja að barn sýni óeðlilega kynhegðun, ber einkenni þess sem hefur orðið fyrir ofbeldi eða sýni þess merki að það vilji segja frá. Einnig hvað þykir eðlileg kynferðisleg hegðun barna á ákveðnum aldri, hvaða hegðun veldur áhyggjum og hvenær ráðlegt er að kalla eftir áliti sérfræðings.

Nýju námskeiðin samanstanda af 6 námsþáttum en hver námsþáttur byggir á stuttum myndböndum, spurningum til umhugsunar og ítarefni. Námskeiðin eru aldurskipt og miðað er við að þáttakendur velji sér námskeið eftir því á hvaða aldri þau börn eru sem viðkomandi hefur helst afskipti af gegnum störf sín.

Þessi nýju námskeið heita: Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga og þau er að finna í skóla Barna- og fjölskyldustofu (BOFS skólanum) á netinu en slóðin inn á hann er: https://bofs.teachable.com   


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica