Nýtt skipurit Barnaverndarstofu tekur gildi 1. júní nk.

26 maí 2020

Nýtt skipurit er hugsað til að efla enn frekar og styrkja þá þjónustu sem Barnaverndarstofa veitir bæði börnum og barnaverndarnefndum og við gerð þess var hugsað til mikilvægi þess við að hagsmunir barna yrðu ávallt í forgrunni hjá stofunni. Var því sérstaklega litið til 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins við gerð nýs skipurits.

Fyrra skipurit stofunnar hefur verið óbreytt frá ársbyrjun 2009 og hefur verið að verulegu leyti óbreytt frá því að stofan hóf starfsemi 1. júní 1995, eða í aldarfjórðung, þrátt fyrir að starfsemi stofunnar sé að mörgu leyti gjörbreytt, starfsfólki hefur fjölgað og eru nú um 100 talsins. Einnig hefur umhverfið breyst verulega með auknum verkefnum og breyttum áherslum, í bæði barnaverndarstarfi og stjórnun.

Mikilvægt þótti að endurstilla fókus og skipulag verkefna með skilvirku skipuriti sem miðaði að því að auka tengsl og samskipti milli einstaka starfsstöðva og skýra betur hlutverk og ábyrgðarsvið en eldra skipurit gerir. Einnig þótti mikilvægt að fá betri heildarsýn á afgreiðslu mála og þjónustu sem Barnaverndarstofa ber ábyrgð á og samhæfa starfsemina þvert á starfsstöðvar.

Markmiðið með skipulagsbreytingunum er að tryggja að boðleiðir séu skýrar, fagleg og stjórnunarleg ábyrgð fari í auknum mæli saman og að hlutverk og ábyrgð starfseininga og stjórnenda sé skýr. Allt þetta miðar að því að gæta sem best hagsmuna þeirra barna sem barnaverndarkerfið sinnir.

Nýtt skipurit gerir ráð fyrir að áfram verði tvö fagsvið starfandi á skrifstofu Barnaverndarstofu; meðferðar- og fóstursvið og ráðgjafar- og fræðslusvið. Einnig verða stofnaðar tvær einingar á skrifstofunni sem vinna þvert á allar aðrar starfseiningar; annars vegar lögfræðisvið og hins vegar skrifstofa forstjóra. Stuðlar og Barnahús heyra áfram beint undir forstjóra. Þannig munu sex starfseiningar heyra beint undir forstjóra. Hver og ein af þessum sex einingum fer með stjórn og þróun faglegs starfs sinnar einingar og ber ábyrgð á mannauðsmálum innan sinnar einingar og koma að kynningar- og fræðslumálum sem varða þeirra verkefni og ábyrgðarsvið.

Framkvæmdastjórn, skipuð forstjóra og þeim stjórnendum sem heyra beint undir forstjóra, mun taka til starfa samhliða nýju skipuriti. Skipuritið gerir einnig ráð fyrir formlegum teymum um afmörkuð verkefni sem starfi þvert á starfseiningar.

Skipuritið má sjá myndrænt með því að smella hér

Skipurit-2020-mynd-3_1590744608740

Hér má finna nánari upplýsingar um hlutverk og verkefni framkvæmdastjórnar og starfseiningarnar sex:

Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn hefur það hlutverk að stýra daglegum rekstri Barnaverndarstofu og bera ábyrgð á að móta og innleiða stefnu í málefnum stofunnar og fylgja eftir mælingum tengdum innleiðingu stefnu. Framkvæmdastjórn mun taka stefnumótandi ákvarðanir sem varða rekstur, stjórnun, stefumótun og þróun þjónustu Barnaverndarstofu til að forstjóri og stjórnendur hafi heildarsýn á afgreiðslu mála og þá þjónustu sem Barnaverndarstofa ber ábyrgð á. Einnig mun framkvæmdastjórn hafa það hlutverk að samhæfa starfsemi Barnaverndarstofu þvert á starfseiningar.

Auk forstjóra sitja í framkvæmdastjórn þeir sex stjórnendur sem heyra beint undir forstjóra, þ.e.: fjármála- og mannauðsstjóri, yfirlögfræðingur, sviðsstjórar meðferðar- og fóstursviðs og ráðgjafar- og fræðslusviðs og forstöðumenn Stuðla og Barnahúss.

Skrifstofa forstjóra

Undir skrifstofu forstjóra munu heyra ýmis verkefni sem tengjast mannauðsmálum og rekstri, launamálum, bókhaldi og fjármálastjórn Barnaverndarstofu í heild, auk daglegs reksturs skrifstofunnar í Borgartúni. Að auki mun skrifstofa forstjóra fara með ýms sérfræðileg mál sem ekki falla beint undir ákveðin fagsvið, s.s. tæknimál, skjalavörslu, gæðamál, persónuvernd, útgáfumál, móttaka og úrvinnsla tölfræðiupplýsinga, umsjón með heimasíðu, og upplýsinga- og kynningarmál Barnaverndarstofu. Yfirstjórn og þróun starfsmannamála, samhæfing og þróun sem og yfirstjórn varðandi fjármál og rekstur allra starfseininga munu einnig heyra undir skrifstofu forstjóra.

Lögfræðisvið

Lögfræðisvið Barnaverndarstofu mun fara með og bera ábyrgð á öllum lögfræðitengdum verkefnum Barnaverndarstofu. Hér er um að ræða aðkomu að afgreiðslu flóknari stjórnsýslumála, samningagerð og eftirfylgd samninga. Lögfræðisvið mun einnig sinna lögfræðilegri ráðgjöf innan stofnunar og utan. Jafnframt tekur lögfræðisvið ákvarðanir um lögsögu barnaverndarmála og ber ábyrgð á hagsmunagæslu fylgdarlausra barna. Lögfræðisvið mun einnig bera ábyrgð á samskiptum við eftirlitsaðila og æðri stjórnvöld og gerð umsagna og álitsgerða stofunnar. Lögfræðisvið sér um eftirlit með barnaverndarnefndum (afgreiðsla kvartana og frumkvæðismála).

Meðferðar- og fóstursvið (MOFS)

MOFS fer með fósturmál; afgreiðslu umsókna um leyfi til fósturforeldra og þá þjálfun og fræðslu sem þeim leyfum fylgja, afgreiðslu á beiðnum um fósturmál og leiðbeiningar til barnaverndarnefnda tengdar þeim. afgreiðir umsóknir um styrkt fóstur og vistúrræði skv. 91. gr. bvl. Innra eftirlit tengt fósturmálum liggur jafnframt á MOFS. Umsóknir um meðferð, bæði meðferðarheimili og fjölkerfameðferð (MST) heyra undir MOFS sem og umsóknir um sálfræðimeðferð vegna óviðeigandi kynferðislegrar hegðunar. Einnig fer MOFS með yfirstjórn meðferðarmála og ber ábyrgð á samhæfingu og þróun meðferðarstarfs Barnaverndarstofu í umboði forstjóra og að tryggja að þar séu innleiddar gagnreyndar aðferðir og unnið í samræmi við bestu vitneskju hverju sinni. Fjölkerfameðferð (MST) er áfram hluti af MOFS en teymisstjórar MST munu fara formlega með faglega og starfsmannalega stjórn á þeim teymum sem þau stýra. Teymisstjórar bera í sameiningu ábyrgð á starfsstöð MST.

Ráðgjafar- og fræðslusvið (ROFS)

ROFS fer með ráðgjöf til barnaverndarnefnda, samstarfsaðila og almennings, ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma fræðslu á vegum Barnaverndarstofu. Einnig hefur ROFS það hlutverk að bera ábyrgð á samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs sveitarfélaga, s.s. með gerð verklags, handbókar um vinnslu barnaverndarmála og leiðbeininga. Einnig ber ROFS ábyrgð á innleiðingu gagnreyndra úrræða og aðferða hjá sveitarfélögum. ROFS afgreiðir einnig leyfi um vistunarúrræði skv. 84. gr. bvl. Hefur ROFS jafnframt það hlutverk að hlutast til um að fram fari þróunar- og rannsóknastarf á sviði barnaverndar. Starfsemi PMTO miðstöðvar færist undir ROFS. Einnig mun ROFS fara með faglega yfirstjórn Barnahúss í umboði forstjóra.

Stuðlar

Stuðlar hafa það hlutverk að taka á móti börnum í bráðatilvikum og tryggja öryggi þeirra. Fer það starf fram á lokaðri deild Stuðla. Einnig hafa Stuðlar það hlutverk að greina vanda barna og veita sérhæfða meðferð vegna alvarlegrar áhættuhegðunar. Hefur því hlutverki verið sinnt á meðferðardeild Stuðla. Einnig mun sérhæfð meðferð verða veitt áfram á Lækjarbakka, sem verður rekinn sem deild undir Stuðlum. Stuðlar bera einnig ábyrgð á vistheimili þar sem börn geta búið í kjölfar meðferðar þegar slíkt úrræði er talið nauðsynlegt fyrir áframhaldandi árangur meðferðar (tilraunaverkefni til tveggja ára). Stuðlar bera ábyrgð á faglegu starfi auk þess að bera ábyrgð á daglegum rekstri einingarinnar og starfsstöðinni.

Barnahús

Barnahús hefur það hlutverk að aðstoða barnaverndarnefndir, lögreglu og dómstóla við könnun mála þar sem grunur leikur á um að börn hafi verið beitt ofbeldi með framkvæmd rannsóknarviðtala. Einnig veitir Barnahús börnum, sem greint hafa frá ofbeldi, áfallameðferð. Barnahús stýrir jafnframt starfsemi útibús Barnahúss á Akureyri, þar sem framkvæmd eru rannsóknarviðtöl og veitt meðferð. Barnahús ber ábyrgð á faglegu starfi auk þess að bera ábyrgð á daglegum rekstri einingarinnar og starfsstöðinni.

Teymi um afmörkuð verkefni

Hægt verður að stofna formleg samstarfsteymi um afmörkuð verkefni sem starfa þvert á starfseiningar og jafnvel með aðkomu samstarfsaðila, ef við á. Teymin geta ýmist verið um föst/viðvarandi verkefni eða tímabundin verkefni sem stofan sinnir eða vinnur að og verður skipaður verkefnisstjóri um hvert og eitt teymi/verkefni.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica