Fréttir: 2017 (Síða 2)

Undirritun samstarfssamnings milli Sálfræðideildar HÍ, Miðstöðvar PMTO-FORELDRAFÆRNI hjá Barnaverndarstofu og Endurmenntunar HÍ - 29 jún. 2017

Þann 21. júní sl. var gengið frá samstarfssamnings milli ofantaldra aðila um framkvæmd og umsjón með PMTO meðferðarmenntun. Námið verður þar með metið til ECTS eininga sem er ánægjulegur áfangi.  
Promise-2

Lokaráðstefna PROMISE verkefnisins um innleiðingu Barnahúsa í Evrópu var haldin í Brussel þann 14. júní sl. - 20 jún. 2017

Á ráðstefnunni var kastljósinu beint að barnvinsamlegu og þverfaglegu samstarfi stofnana sem veita börnum sem eru fórnarlömb ofbeldis þjónustu. Meðal ræðumanna voru Věra Jourová, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málaflokkum tengdum réttarkerfi og jafnréttismálum og Marta Santos Pais sérlegur fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna vegna ofbeldis gegn börnum. Þær lýstu í ræðum sínum yfir stuðningi sínum við innleiðingu Barnahúsa í Evrópu (en. The Barnahus Movement). Bragi Guðbrandsson, helsti sérfræðingur PROMISE verkefnisins, kynnti reynsluna á Íslandi og hvernig sú reynsla hefur verið Evrópu innblástur varðandi innleiðingu Barnahúsa.

Starf sérfræðings á meðferðar- og fóstursviði - 12 jún. 2017

Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf sem felur meðal annars í sér:
 Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturforeldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra fagaðila vegna skipulags og framkvæmdar þjónustu við börn í tilteknum úrræðum.
 Umfjöllun og afgreiðslu umsókna sem felur meðal annars í sér mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra fagaðila um umönnunar-/meðferðarþörf barna og viðeigandi þjónustu.
 Leiðbeiningar og gæðaeftirlit við gerð og framkvæmd meðferðarmarkmiða og meðferðaráætlana vegna barna sem eru á fóstur- eða meðferðarheimilum, m.a. börn sem glíma við alvarlega hegðunar- og/eða tilfinningaerfiðleika.

Lokaráðstefna PROMISE verkefnisins - innleiðing Barnahúsa í Evrópu - 12 jún. 2017

Miðvikudaginn þann 14. júní nk. verður lokaráðstefna Promise verkefnisins haldin í Brussels.
Promise er verkefni á vegum Eystrasaltsráðsins og fjármagnað af Evrópusambandinu og miðar að því að liðsinna Evrópuríkjum til að koma á fót Barnahúsum í Evrópu sjá nánar:  http://www.childrenatrisk.eu/promise/

Írar líta til Barnahúss í kjölfar klúðurs við rannsókn kynferðisbrotamáls - 8 jún. 2017

Viðtal við Braga Guðbrandsson forstjóra Barnaverndarstofu í The Irish Times eftir erindi hans á ráðstefnunni "World Congress on Family Law and Children's Rights" í Dublin. Á ráðstefnunni voru 150 fyrirlesarar og meira en 600 þátttakendur frá 53 löndum.

Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga - 20 ára starfsafmæli - 26 maí 2017

Föstudaginn 26. maí 2017 fagna Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga, 20 ára starfsafmæli.  Af því tilefni er opið hús fyrir samstarfsaðila okkar og velunnara í húsnæði Stuðla, að Fossaleyni 17 frá 14:00-16:00. 

Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á fyrstu þremur mánuðum áranna 2015, 2016 og 2017. - 24 maí 2017

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 16,7% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2017 miðað sama tímabil árið á undan. Hins vegar er fjölgunin 19,3% ef miðað er við fyrstu þrjá mánuði ársins 2015. Fjöldi tilkynninga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2017 var 2.550 tilkynningar, en 2.185 á sama tímabili árið á undan.

Hælisleitandi börn - fylgdarlaus börn á flótta - 11 maí 2017

Óskað er eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að vista eða fóstra barn á heimili sínu til lengri eða skemmri tíma. Æskilegt er að þeir sem taka að sér börn í slíkum aðstæðum hafi reynslu eða þekkingu á málefnum flóttabarna, mismunandi menningu þeirra, trú og hefðum og eða tali tungumál þeirra. Nauðsynlegt er að umsækjendur sæki undirbúningsnámskeið á vegum Barnaverndarstofu, hafi möguleika á að sinna þörfum barna í nýju umhverfi og veita þeim öruggt skjól á heimili sínu. Mikilvægt er að umsækjendur hafi sveigjanlegan vinnutíma. Athugið að næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn 17. maí kl. 14 til 19. Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Barnaverndarstofu í síma 530 2600 eða sendi tölvupóst á bvs@bvs.is.

Fylgdarlaus börn - vistforeldrar - 21 apr. 2017

Barnaverndarstofa endurtekur námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka fylgdarlaus börn á flótta inn á heimili sín. Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 17. maí nk. kl. 14:00 til 19:00 í fundarsal Barnaverndarstofu að Borgartúni 21

Síða 2 af 3

Fleiri greinar


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica