Fréttir


Fréttasafn: nóvember 2012

30.11.2012 : Oftar tilkynnt um heimilisofbeldi

Tilkynningum um meinta vanrækslu til Barnaverndar Eyjafjarðar fjölgaði um 33% fyrstu 10 mánuði ársins.

115 tilkynningar höfðu borist um síðustu mánaðamót á Eyjafjarðarsvæðinu en allt árið í fyrra bárust 104 tilkynningar, að því er fram kemur í Akureyri vikublaði.

26.11.2012 : Börn á Íslandi án löglegra forsjáraðila

Af gefnu tilefni telur Barnaverndarstofa nauðsynlegt að árétta að mál sem varða komu barna til Íslands í fylgd fullorðinna sem kveðjast foreldrar þeirra og framvísa fölsuðum skilríkjum þar að lútanandi eru afar fátíð. Í ljósi umfjöllunar sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga kannaði Barnaverndarstofa málið hjá Útlendingastofnun, Mannréttindaskrifstofu og barnaverndarnefndum. Barnaverndarstofu er kunnugt um tvö slík mál á undanförnum árum, annað er það sem hefur verið til umfjöllunar um þessar mundir og hitt málið kom upp fyrir nokkrum árum og dómstólar á Íslandi hafa fjallað um. Í þessum málum er ekki grunur um mansal.

23.11.2012 : Miðstöð foreldra og barna

Árið 2008 stofnuðu nokkrir sérfræðingar Miðstöð foreldra og barna (MFB) sem ætlað er að meðhöndla vanlíðan mæðra og efla samband þeirra við börn sín (0-5 ára) og þar með þroska og velferð barnanna. Um er að ræða nýjung hér á landi þar sem sérhæfð meðferðarúrræði í geðheilbrigðisþjónustu fyrir foreldra og börn þeirra undir 5 ára aldri hafa ekki verið til staðar. Ung börn eru í sérstakri áhættu ef foreldrar glíma við geðheilsuvanda eða fíkn, voru sjálfir vanræktir eða misnotaðir sem börn, eru óþroskaðir og njóta lítils stuðnings fjölskyldu, búa við fátækt eða heimilisofbeldi. Viðvarandi streita ungra barna skaðar heilann og dregur úr vexti hans, veikir ónæmiskerfið og mótstöðuafl líkamans gegn langvinnum heilsufarsvandamálum fram á fullorðinsár og hamlar félags- og tilfinningalegum þroska. Stór hópur foreldra og barna þarf meiri og sérhæfðari aðstoð en grunnþjónusta heilsugæslu veitir án þess að eiga erindi á geðdeild.

22.11.2012 : Child-friendly Justice eða Barnvinsamlegt réttarkerfi: Viðtal við Braga Guðbrandsson

Viðtal við Braga Guðbrandsson forstjóra Barnaverndarstofu
 
 
Bragi útskýrir í viðtalinu hugtakið "child-friendly justice" eða það sem kallast á íslensku barnvinsamlegt réttarkerfi og nefnir nokkur raunveruleg dæmi um barnvinsamlegt dómsumhverfi eða sérstaklega gerð herbergi til að taka skýrslur af börnum fyrir dómstóla í Evrópu. Til að nálgast frekari upplýsingar um barnvinsamlegt réttarkerfi er hægt að skoða:

22.11.2012 : Viðbrögð við kynferðisofbeldi, heimildarmynd gefin út af Evrópuráðinu

Á alþjóðadegi barnsins, 20. nóvember, gaf Evrópuráðið út heimildarmynd um viðbrögð við mynd av vídeó KOFkynferðisofbeldi á börnum þar sem íslenska Barnahúsið er þungamiðja umfjöllunarinnar.

Til að sjá myndbandið smelltu á myndina 

5.11.2012 : Lanzarote-nefnd Evrópuráðsins mælir með Barnahúsi

Ísland hefur nú fullgilt bindandi samning Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðisofbeldi, svonefndan Lanzarote samning, og tekur hún gildi hinn 1. janúar 2014. Alls hafa þá 22 aðildarríki fullgilt samninginn.

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica