Fréttir


Fréttasafn: júní 2017

29.6.2017 : Undirritun samstarfssamnings milli Sálfræðideildar HÍ, Miðstöðvar PMTO-FORELDRAFÆRNI hjá Barnaverndarstofu og Endurmenntunar HÍ

Þann 21. júní sl. var gengið frá samstarfssamnings milli ofantaldra aðila um framkvæmd og umsjón með PMTO meðferðarmenntun. Námið verður þar með metið til ECTS eininga sem er ánægjulegur áfangi.  
Promise-2

20.6.2017 : Lokaráðstefna PROMISE verkefnisins um innleiðingu Barnahúsa í Evrópu var haldin í Brussel þann 14. júní sl.

Á ráðstefnunni var kastljósinu beint að barnvinsamlegu og þverfaglegu samstarfi stofnana sem veita börnum sem eru fórnarlömb ofbeldis þjónustu. Meðal ræðumanna voru Věra Jourová, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málaflokkum tengdum réttarkerfi og jafnréttismálum og Marta Santos Pais sérlegur fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna vegna ofbeldis gegn börnum. Þær lýstu í ræðum sínum yfir stuðningi sínum við innleiðingu Barnahúsa í Evrópu (en. The Barnahus Movement). Bragi Guðbrandsson, helsti sérfræðingur PROMISE verkefnisins, kynnti reynsluna á Íslandi og hvernig sú reynsla hefur verið Evrópu innblástur varðandi innleiðingu Barnahúsa.

12.6.2017 : Starf sérfræðings á meðferðar- og fóstursviði

Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf sem felur meðal annars í sér:
 Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturforeldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra fagaðila vegna skipulags og framkvæmdar þjónustu við börn í tilteknum úrræðum.
 Umfjöllun og afgreiðslu umsókna sem felur meðal annars í sér mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra fagaðila um umönnunar-/meðferðarþörf barna og viðeigandi þjónustu.
 Leiðbeiningar og gæðaeftirlit við gerð og framkvæmd meðferðarmarkmiða og meðferðaráætlana vegna barna sem eru á fóstur- eða meðferðarheimilum, m.a. börn sem glíma við alvarlega hegðunar- og/eða tilfinningaerfiðleika.

12.6.2017 : Lokaráðstefna PROMISE verkefnisins - innleiðing Barnahúsa í Evrópu

Miðvikudaginn þann 14. júní nk. verður lokaráðstefna Promise verkefnisins haldin í Brussels.
Promise er verkefni á vegum Eystrasaltsráðsins og fjármagnað af Evrópusambandinu og miðar að því að liðsinna Evrópuríkjum til að koma á fót Barnahúsum í Evrópu sjá nánar:  http://www.childrenatrisk.eu/promise/

8.6.2017 : Írar líta til Barnahúss í kjölfar klúðurs við rannsókn kynferðisbrotamáls

Viðtal við Braga Guðbrandsson forstjóra Barnaverndarstofu í The Irish Times eftir erindi hans á ráðstefnunni "World Congress on Family Law and Children's Rights" í Dublin. Á ráðstefnunni voru 150 fyrirlesarar og meira en 600 þátttakendur frá 53 löndum.

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica