Fréttir


Fréttasafn: apríl 2020

20.4.2020 : Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgar; frá börnum, foreldrum og nágrönnum. Fjölgun tilkynninga þar sem börn eru talin í bráðri hættu er mikið áhyggjuefni

Einnig er áhyggjuefni aukning tilkynninga þar sem börn eru beitt líkamlegu ofbeldi og aukning tilkynning vegna andlegs ofbeldis gagnvart börnum. Þá fjölgar einnig tilkynningum þar sem börn verða fyrir heimilisofbeldi. Heldur hefur dregið úr tilkynningum vegna áhættuhegðunar barna en mikilvægt verður að fylgjast vel með næstu vikum og mánuðum til að sjá hver þróunin verður. Hér fyrir neðan er fjallað um helstu niðurstöður greiningar Barnaverndarstofu ásamt grein Heiðu Bjargar Pálmadóttur forstjóra vegna stöðunnar.

7.4.2020 : Það sem af er ári hafa rúmlega 3.000 tilkynningar vegna 2.427 barna borist til barnaverndarnefnda landsins

Flestar tilkynningarnar eru vegna vanrækslu á börnum, samtals 1.304, næst koma tilkynningar vegna áhættuhegðunar barna, 838 talsins og svo koma samtals 861 tilkynningar um ofbeldi gagnvart börnum.

3.4.2020 : Vernd barna - þú skiptir sköpum

Mikilvægt er að allir sem hafa áhyggjur af aðstæðum barna hafi samband við barnaverndarnefnd. Neyðarlínan 112 tekur við tilkynningum allan sólarhringinn.

Nú skiptir mjög miklu máli að samfélagið allt taki sig saman með það að markmiði að vernda börnin okkar. Við berum öll ábyrgð á því að fylgjast með þegar áhyggjur eru af börnum, berum öll ábyrgð á að bjóða fram aðstoð til þeirra fjölskyldna sem þurfa hjálp, berum öll ábyrgð á því að láta vita þegar eitthvað er að í lífi barns.

Hægt er að hafa beint samband við barnaverndarnefndir sveitarfélaganna í síma eða í gegnum heimasíður þeirra. Það er líka alltaf hægt að hringja í Neyðarlínuna - 112. 

Hér getur þú skoðað nýtt kynningarmyndband um tilkynningarskylduna.

 

Hér er hægt að lesa grein sem birtist á visi.is í dag um af hverju það er mikilvægt að við séum öll barnavernd og látum vita af aðstæðum barna. 

Heida

 

Vernd barna - þú skiptir sköpum

Börn virðast ekki vera sérstaklega næm fyrir kórónaveirunni en þau eru samt sem áður viðkvæmur hópur sem huga þarf aðvegna faraldursins

 

 

 

Hér er hlekkur á grein með skilaboðum til barna og ungmenna sem líður ekki vel og þurfa að hafa samband

Saman getum við sem samfélag haldið verndarhendi yfir börnunum okkar.
Börnin treysta á okkur. Við treystum á ykkur. Við erum öll barnavernd.

 

 

 

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica