Fréttir


Fréttasafn: júní 2022

20.6.2022 : Barna- og fjölskyldustofa gerði samstarfssamning við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands um ritun sögu barnaverndar hérlendis.

Barna- og fjölskyldustofa gerði samstarfssamning við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands um ritun sögu barnaverndar hérlendis en þetta er tileinkað þeim tímamótum að liðin eru 90 ár frá setningu fyrstu barnaverndarlaga hér á landi og rúmlega 25 ár síðan Barnaverndarstofa nú Barna- og fjölskyldustofa var sett á laggirnar. Sigrún Harðardóttir skrifaði undir samninginn fyrir hönd Háskóla Íslands og Ólöf Ásta Farestveit fyrir hönd Barna- og fjölskyldustofu. Skipuð verður 6-8 manna ritnefnd. Áætlað er að fræðiritið komi út fyrri hluta ársins 2024. 

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica