Fréttir


Fréttasafn: maí 2017

26.5.2017 : Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga - 20 ára starfsafmæli

Föstudaginn 26. maí 2017 fagna Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga, 20 ára starfsafmæli.  Af því tilefni er opið hús fyrir samstarfsaðila okkar og velunnara í húsnæði Stuðla, að Fossaleyni 17 frá 14:00-16:00. 

24.5.2017 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á fyrstu þremur mánuðum áranna 2015, 2016 og 2017.

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 16,7% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2017 miðað sama tímabil árið á undan. Hins vegar er fjölgunin 19,3% ef miðað er við fyrstu þrjá mánuði ársins 2015. Fjöldi tilkynninga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2017 var 2.550 tilkynningar, en 2.185 á sama tímabili árið á undan.

11.5.2017 : Hælisleitandi börn - fylgdarlaus börn á flótta

Óskað er eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að vista eða fóstra barn á heimili sínu til lengri eða skemmri tíma. Æskilegt er að þeir sem taka að sér börn í slíkum aðstæðum hafi reynslu eða þekkingu á málefnum flóttabarna, mismunandi menningu þeirra, trú og hefðum og eða tali tungumál þeirra. Nauðsynlegt er að umsækjendur sæki undirbúningsnámskeið á vegum Barnaverndarstofu, hafi möguleika á að sinna þörfum barna í nýju umhverfi og veita þeim öruggt skjól á heimili sínu. Mikilvægt er að umsækjendur hafi sveigjanlegan vinnutíma. Athugið að næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn 17. maí kl. 14 til 19. Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Barnaverndarstofu í síma 530 2600 eða sendi tölvupóst á bvs@bvs.is.

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica