Fréttir


Fréttasafn: desember 2018

21.12.2018 : Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna nýs meðferðarheimilis Barnaverndarstofu sem staðsett verður í Garðabæ

Stefnt er að því að fram­kvæmd­ir við nýtt meðferðar­heim­ili fyr­ir ung­linga hefj­ist á næsta ári í Garðabæ. Vilja­yf­ir­lýs­ing vel­ferðarráðuneyt­is, Barna­vernd­ar­stofu og Garðabæj­ar um lóð fyr­ir heim­ilið verður undirrituð í dag.  Um er að ræða tíu þúsund fer­metra lóð á Víf­ilsstaðahálsi, gegnt Kjóa­völl­um, þar sem reisa á þúsund fer­metra hús­næði.

20.12.2018 : PMTO fær hæstu einkunn sem viðeigandi úrræði í barnaverndarmálum í Bandaríkjunum

Nýlega fékk GenerationPMTO (bandaríska nafnið á PMTO) hæstu einkunn í Bandaríkjunum í gagnagrunni sem nær til gagnreyndra úrræða sem eru viðeigandi við vinnslu mála innan barnaverndar.
CBCE (California Evidence Based Clearinghouse for Child Welfare) er bandarískur gagnagrunnur sem safnar saman og metur meðferðarúrræði sem beinast að börnum, unglingum og fjölskyldum innan barnaverndar. Markmiðið er að stuðla að áhrifaríkri innleiðingu og gagnreyndum aðferðum fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.
CEBC hefur farið í gegnum þær rannsóknarniðurstöður sem fyrirfinnast og metur að PMTO fái hæstu einkunn, sem er „1- Well-Supported by Reasearch Evidence“. Samtímis fær PMTO hæstu einkunn varðandi úrræði sem eiga mjög vel við í barnaverndarmálum.

13.12.2018 : PMTO er hágæðaúr­ræði sem þyrfti að vera í boði fyr­ir sem flesta for­eldra barna með aðlög­un­ar­erfiðleika.

Í grein á mbl.is þann 11. desember sl.  eru tekin viðtöl við foreldra sem þegið hafa PMTO úrræðið. (Parent Management Training Oregon á íslensku Foreldrafærniþjálfun) Þessir foreldrar segja að þetta hafi breytt miklu í lífi þeirra. Einnig er rætt við Margréti Sigmarsdóttur forstöðumann miðstöðvar PMTO hjá Barnaverndarstofu og Arndísi Þorsteinsdóttur sem starfar hjá miðstöðinni. Heiða Björg Pálmadóttir starfandi forstjóri Barnaverndarstofu kemur einnig með innlegg í greinina.

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica