Fréttir


Fréttasafn: júní 2016

22.6.2016 : Samanburður á fjölda tilkynninga og fjölda umsókna um þjónustu.

Hér er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrstu þrjá mánuði áranna 2015 og 2016. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir sama tímabil. 

20.6.2016 : Innleiðing barnahúsa í Evrópu

Nú er nýlega lokið námskeiði sem haldið var 40 sérfræðinga frá 12 Evrópulöndum sem hafa áhuga á að innleiða barnahús að norrænni fyrirmynd.

20.6.2016 : Fréttaskýringarþáttur BBC - barnahús væntanleg í Englandi

Í síðustu viku sendi BBC út sérstakan fréttaskýringaþátt um viðbragðskerfi Íslendinga vegna kynferðisofbeldi gegn börnum. Í þættinum er fjallað um starfsemi barnahúss og jafnframt er ítarlegt viðtal við Anne Longfield the Children´s Commissioner of England sem fór fyrir breskri sendinefnd ráðuneyta og stofnana sem kom til Íslands nýlega til að kynna sér fyrirkomulagið hér. Fram kemur m.a. að nú þegar hefur verið ákveðið að koma á fót 2 barnahúsum í Englandi í tilraunarskyni, í London og Durham.

8.6.2016 : PMTO meðferðarmenntun - innskrift og útskrift!

Í síðustu viku fór fram kynningarfundur á vegum Miðstöðvar PMTO-FORELDRAFÆRNI. Fagfólk sem hefja mun meðferðarmenntunarnám næsta haust sótti fundinn og það verður spennandi að ferðast með þessum kraftmikla hópi næstu tvö árin.

Sama dag útskrifaðist glæsilegur hópur fagfólks úr tveggja ára PMTO meðferðarmenntunarnámi. Við óskum þeim innilega til hamingju og velfarnaðar í starfi.

3.6.2016 : Formleg opnun Barnahúss í Litháen

Íslendingar hafa veitt tæknilega aðstoð við undirbúning starfseminnar og hafa sérfræðingar Barnahúss ásamt forstjóra stofunnar annast þjálfun starfsfólks og veitt ráðgjöf fagfólki og stofnunum sem að húsinu standa. Félagsmálasjóður EES veitti fjárhagslega aðstoð til verkefnisins sem gerði kleift að fjármagna gagnkvæmar heimsóknir fagfólks.

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica