Fréttir


Fréttasafn: janúar 2013

31.1.2013 : Hundur eða blaðra? Vímuefnaleit í framhaldsskólum og skólaskemmtunum!

n8feb2013Morgunverðarfundur ,,Náum áttum" verður á Grand Hótel, miðvikudaginn 6 febrúar nk. frá kl 8 15 - 10 00. 
Fáðu frekari upplýsingar með því að smella á myndina. 
Erindi fundarins eru:
Friðhelgi einkalífs barna og vímuefnaleit - hvar liggja mörkin?
Hver eru sjónarmið nemanda?
Hvað virkar best í forvörnum?
Opnar umræður á eftir erindum!

 

29.1.2013 : Börn geta þurft að bíða í nokkrar vikur eftir fyrsta könnunarviðtali, segir Ólöf Ásta Farestveit, forstöðumaður Barnahúss.

Í hádegisfréttum á Rás 1 og 2 þann 25 janúar kom fram í viðtali við Ólöfu að mikið álag hafi verið á Barnahúsi nú í janúar og þrefalt fleiri mál komið þar inn á borð en á sama tíma í fyrra. Börn geta þurft að bíða í nokkrar vikur eftir fyrsta könnunarviðtali. 

23.1.2013 : ,,Sóknarpresti svarað" Blaðagrein Braga Guðbrandssonar forstjóra Barnaverndarstofu í Morgunblaðinu þann 19. janúar sl.

Margir virðast reiðubúnir að sniðganga grundvallarreglur réttarríkisins og kalla eftir ólögmætum geðþóttaákvörðunum embættismanna þegar svo ber undir!

 

23.1.2013 : Anna Kristín Newton réttarsálfræðingur og starfsmaður Barnaverndarstofu í Kastljósi

Þann 9 janúar sl. var Anna Kristín Newton réttarsálfræðingur í Kastljósi og var rætt við hana hvernig samfélagið eigi að taka á málum einstaklinga sem haldnir eru barnagirnd.

23.1.2013 : Heiða Björg Pálmadóttir lögfræðingur Barnaverndarstofu í viðtali í Speglinum á RÚV þann 21 janúar sl.

Heiða Björg segir reglur séu skýrar þegar grunur leikur á því að börn hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Þá eigi að tilkynna það til barnaverndaryfirvalda.

23.1.2013 : Samfélagið í nærmynd heimsækir Barnahús

Þann 18. janúar sl. var Samfélagið í nærmynd sent út frá Barnahúsi.

17.1.2013 : Breytt fyrirkomulag á málstofum um barnavernd

Ákveðið hefur verið í samráði við samstarfsaðila að hætta með mánaðarlegar málstofur Barnaverndarstofu. Þess í stað verður haldin fræðslu- og umræðudagur fyrir starfsfólk barnaverndarnefnda einu sinni að vori og hausti.

16.1.2013 : Verklagsreglur um tilkynningaskyldu heilbrigðisstarfsfólks

Verklagsreglur um tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsfólks til barnaverndarnefnda vegna gruns um vanrækslu og/eða ofbeldi gagnvart barni, barn stofni eigin lífi i hættu eða lífi eða heilsu ófædds barns sé stefnt í hættu  hafa nú verið endurskoðaðar. Verklagsreglurnar sem unnar eru í samstarfi starfsfólks Landspítala háskólasjúkrahúss, heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis, Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarstofu voru fyrst gefnar út árið 2004. Þær varða börn að 18 ára aldri og þungaðar konur. Verklagsreglurnar ná til alls starfsfólks heilbrigðisstofnana.

Í verklagsreglunum er gerð grein fyrir tilkynningaskyldu almennings og þeirra sem afskipti hafa af börnum. Fjallað er um helstu þætti sem tilkynnt er um ásamt leiðbeiningum um hvernig tilkynningum er komið á framfæri við barnaverndarnefnd. Hér má nálgast verklagsreglurnar en þær eru aðgengilegar á vefsíðu Barnaverndarstofu undir „Verklagsreglur og vinnulag“.

9.1.2013 : Upptaka af ráðstefnu um samstarf skóla og barnaverndar

Vakin er athygli á því að hér á heimasíðu BVS er nú að finna upptöku af ráðstefnu sem haldin var í maí sl. um mikilvægi samstarfs skóla og barnaverndar. Að ráðstefnunni stóð Barnaverndarstofa í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur en mennta- og menningarmálaráðuneytið veitti styrk til tryggja útsendinguna.

 

8.1.2013 : Breytingar á barnalögum

Barnaverndarstofa vekur athygli á að um sl. áramót tóku gildi breytingar sem gerðar hafa verið á barnalögum nr. 76/2003. Varða breytingarnar m.a. breytt vinnulag þegar ágreiningur er milli foreldra um umgengni sem fela í sér að barnaverndarnefndir sveitarfélaga koma ekki lengur að þeim málum.

Í frétt á vef innanríkisráðuneytis er vakin athygli á því að um þau mál, sem nú þegar eru til meðferðar hjá sýslumönnum og er ólokið, fer samkvæmt eldra vinnulagi. Þá eru á vef ráðuneytisins rakin helstu nýmæli í lögunum og með hvaða hætti vinna á málin eftir breytinguna.

Frétt innanríkisráðuneytisins

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica