Fréttir


Fréttasafn: febrúar 2013

28.2.2013 : Vantar úrræði!

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu segir í fréttum á RUV að meðferðarstofnanir geti ekki  veitt ungum föngum þá aðstoð sem þeir eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, ef þeir vilja ekki fara í meðferð. Lögfesting sáttmálans þýði að meðferðastofnanir eigi að geta haldið þeim sem ekki vilja fara í meðferð gegn vilja þeirra. Það geti stofnanir ekki í dag.

21.2.2013 : Að lesa í merki barnsins

Miðstöð foreldra og barna standa fyrir námskeiði dagana 4. og 5. apríl nk. frá kl. 9-16 sem ætlað er öllum þeim sem starfa með foreldrum og ungbörnum yngri en þriggja mánaða, þ.e. ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, læknum, sálfræðingum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum, starfsfólki barnaverndarnefnda og öðrum meðferðaraðilum. Námskeiðið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en um er að ræða námskeið frá Brazelton Institute í Boston. Kennd verður aðferð til að hjálpa foreldrum að lesa í merki barns frá 0-3ja mánaða. Leiðbeinendur  verða Dr. Lise C. Johnson og Dr. Joanna Hawthorne.
 

19.2.2013 : ,,Ísland í dag" heimsækir skammtímavistun fyrir unglinga!

Í þættinum Ísland í dag þann 18 febrúar var umfjöllun um Hraunberg 15 sem er skammtímavistun fyrir börn á aldrinum 13 - 18 ára sem ekki geta búið heima hjá sér af einhverjum ástæðum. Hraunberg er úrræði á vegum Reykjavíkurborgar og eru börnin vistuð þar til lengri eða skemmri tíma á vegum Barnaverndar Reykjavíkur.
Hér er hægt að sjá umfjöllunina

19.2.2013 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2011 og 2012.

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði úr 8.698 í 7.854 á árinu 2012. Mest var fækkunin á tilkynningum frá lögreglu. Umsóknum um MST fækkaði úr 82 í 77, umsóknum um meðferðarheimili fækkaði 92 í 68 og umsóknum um fósturheimili fækkaði úr 144 í 108.

14.2.2013 : 112 er barnanúmerið
Mikilvægt er að börn og foreldrar viti hvert á að leita þegar grunur er um vanrækslu eða ofbeldi

Í grein Steinunnar Bergmann félagsráðgjafa á Barnaverndarstofu sem birtist í Fréttablaðinu þann 14 febrúar kemur m.a. fram að neyðarlínan - 112 - tekur á móti tilkynningum samkvæmt umboði frá barnaverndarnefndum landsins.

13.2.2013 : Upplýsingabæklingur til foreldra um heimsóknir barna í fangelsi!

Fangelsismálastofnun vinnur að gerð upplýsingabæklinga sem snúa að hinum ýmsu þáttum sem snúa að fangelsisvist. Fyrsti bæklingurinn hefur nú litið dagsins ljós en í honum er fjallað um heimsóknir barna í fangelsi.

12.2.2013 : Kynning á Vistheimili barna í Íslandi í dag!

Á Vistheimili barna sem er úrræði á vegum Reykjavíkurborgar eru börn á aldrinum 0 - 13 ára vistuð til  lengri eða skemmri tíma á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Ísland í dag kynnti sér Vistheimilið á Laugarásvegi.
Hér er hægt að sjá þá umfjöllun

8.2.2013 : 112 dagurinn 2013

Auglysing112 Þann 11. febrúar er 112 - dagurinn haldinn í fjölmörgum Evrópulöndum. Að þessu sinni er sjónum beint að getu almennings til þess að bregðast við á vettvangi alvarlegra slysa og veikinda, að fólk hringi í 112 og veiti fyrstu aðstoð áður en sérhæfð aðstoð berst. Einnig að vekja athygli almennings á að 112 er ekki bara neyðarnúmerið hér heima heldur einnig í löndum Evrópu.

7.2.2013 : Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum

Í samræmi við samning Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum fól ríkisstjórn Íslands þremur ráðuneytum, þ.e. innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti að undirbúa vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

7.2.2013 : Aukið álag getur tafið meðferð!

Í viðtali í Morgunblaðinu þann 7 febrúar segir forstjóri Barnaverndarstofu, Bragi Guðbrandsson, að þrátt fyrir stóraukið álag á starfsmenn Barnahúss sé enn unnt að sinna hratt skýrslutökum fyrir dómstóla. Hins vegar sé hætt við að önnur verkefni, einkum meðferðarviðtöl við börn, tefjist. Fjórir sérfræðingar vinna hjá Barnahúsi auk ritara og sinnir stofnunin öllu landinu. Tæplega þreföldun varð á málum sem bárust Barnahúsi í janúarmánuði.

Síða 1 af 2

Fleiri greinar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica