Fréttir


Barnaverndarstofa auglýsir eftirfarandi störf til umsóknar

Tvær stöður sálfræðinga á Stuðlum, staða teymisstjóra í MST, sálfræðingar / félagsráðgjafar í tvær stöður MST-þerapista, sérfræðingur á ráðgjafar- og fræðslusvið og sérfræðingur á meðferðar- og fóstursvið.

17.5.2019

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

Sérfræðingur á ráðgjafar- og fræðslusvið

Ráðgjafar- og fræðslusvið stýrir og skipuleggur ráðgjöf og fræðslu fyrir barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra, veitir samstarfsaðilum og almenningi leiðbeiningar um barnavernd og stýrir fræðslu, þróun og innleiðingu aðferða við vinnslu barnaverndarmála. Auk þess heldur sviðið utan um vinnslu tölfræðilegra upplýsinga fyrir Barnaverndarstofu og stýrir gerð ársskýrslu stofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði.

  • Krafa um þekkingu á starfi barnaverndar, reynsla af barnaverndarstarfi æskileg.

  • Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti.

  • Þekking og reynsla af úrvinnslu tölfræðilegra upplýsinga æskileg.

Sérfræðingur á meðferðar- og fóstursvið

Meðferðar- og fóstursvið stýrir skipulagi meðferðarstarfs vegna hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda barna, þjálfar verðandi fósturforeldra og metur umönnunar- og meðferðarþörf barna við afgreiðslu umsókna barnaverndarnefnda um fósturheimili og meðferð. Auk þess veitir sviðið barnaverndarnefndum, fósturforeldrum, meðferðaraðilum á vegum Barnaverndarstofu og öðrum fagaðilum ráðgjöf vegna meðferðar- og fósturmála. Sviðið ber jafnframt ábyrgð á gæðaeftirliti með þjónustu við börn sem dvelja á fóstur- eða meðferðarheimilum og veitir leiðbeiningar um slíka þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði.

  • Þekking og hæfni til að meta upplýsingar barnaverndarnefnda og annarra fagaðila um umönnunar- og meðferðarþörf barna.

  • Reynsla af meðferðarvinnu eða foreldrafærniþjálfun sem nýtist í starfi og/eða fósturmálum er æskileg.

  • Reynsla af barnaverndarstarfi er æskileg.

Tvær stöður sálfræðinga á Stuðlum

Stuðlar veita börnum á aldrinum 12-18 ára bráðaþjónustu og sérhæfða meðferð vegna alvarlegs hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Störf sálfræðinga á Stuðlum taka nú breytingum og eru tvær nýjar stöður lausar til umsóknar. Sálfræðingar Stuðla munu hafa umsjón með greiningu og meðferð vegna barna á meðferðardeild, þar með talið fjölskyldumeðferð og eftirmeðferð, sinna ráðgjöf og handleiðslu og eiga samvinnu við starfsfólk Stuðla, barnaverndarnefnda, skóla, heilbrigðisstofnana og aðra samstarfsaðila. Einnig munu sálfræðingar Stuðla bera ábyrgð á og veita sálfræðiþjónustu við önnur meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu og bera ábyrgð á frummati og ráðgjöf vegna barna sem eru neyðarvistuð á lokaðri deild Stuðla.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Löggilding sem sálfræðingur á Íslandi.

  • Þekking, reynsla og færni í greiningarvinnu, hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.

  • Þekking á innleiðingu og viðhaldi gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi og mati á meðferðarþörf er æskileg.

  • Færni til að handleiða og eiga samvinnu við samstarfsfólk innan stofnunar sem utan.

  • Sérmenntun í meðferðarvinnu sem nýtist í starfi er æskileg. 

Nýtt teymi í fjölkerfameðferð (MST)

MST er meðferð fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Meðferðin fer fram á heimili og í nærumhverfi fjölskyldunnar í samstarfi við starfsfólk barnaverndarnefnda, skóla, heilbrigðisstofnana og aðra sérfræðinga.

Vegna mikillar eftirspurnar eftir MST meðferð stendur til að bæta við þriðja meðferðarteyminu og er því auglýst eftir sérfræðingum í eftirfarandi stöður:

Staða teymisstjóra í MST

Teymisstjóri sinnir daglegri umsjón og faglegri stjórnun MST teymis og stýrir vikulegri faghandleiðslu og klínískri starfsþróun MST þerapista samkvæmt aðferðafræði MST. Einnig metur teymisstjóri meðferðarþörf, fjallar um stigskipta þjónustu og umsóknir um meðferð í samráði við aðra sérfræðinga Barnaverndarstofu og barnaverndarnefnda. Teymisstjóri tekur þátt í faglegri þróun og fræðslu og samráði við erlendan MST sérfræðing um gæði í meðferð.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Krafa um sálfræðing með löggildingu eða einstakling með meistarapróf og að lágmarki tveggja ára þjálfun og reynslu af klínískri vinnu, aðra en af störfum í MST.

  • Krafa um þekkingu, reynslu og færni í greiningarvinnu, hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.

  • Sérmenntun í meðferðarvinnu sem nýtist í starfi er æskileg.

  • Reynsla af störfum við MST meðferð er æskileg. 

Sálfræðingar / félagsráðgjafar í tvær stöður MST-þerapista

MST þerapisti sinnir meðferð fjölskyldna og barna í nærumhverfi undir stjórn teymisstjóra í samvinnu við lykilaðila, gerir meðferðaráætlanir, tekur þátt í vikulegri faghandleiðslu teymis og klínískri starfsþróun með teymisstjóra og erlendum MST sérfræðingi. Þerapisti heldur meðferðarfundi og er aðgengilegur forsjáraðilum barns í síma innan umsamins sveigjanlegs vinnutíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Krafa um meistarapróf og löggildingu/starfsréttindi sem sálfræðingur eða félagsráðgjafi.

  • Krafa um þekkingu og færni í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.

  • Sérmenntun í meðferðarvinnu sem nýtist í starfi er æskileg.

    Nánari upplýsingar um störfin og kröfur til umsækjenda má finna á Starfatorgi, www.starfatorg.is

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur, mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, í síma 530 2600 eða gudruns@bvs.is. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica