Fréttir


Barnaverndarstofa auglýsir til umsóknar tvær stöður sérfræðinga í PMTO foreldrafærni.

18.5.2020

Um 100% stöður er að ræða sem fela m.a. í sér:

• Samvinnu við sveitarfélög vegna innleiðingar og viðhalds PMTO svæða.
• Aðkomu að skipulagi og framkvæmd menntunar PMTO meðferðaraðila.
• Umsjón með handleiðslu og fræðslu fyrir PMTO sérfræðinga.
• Aðkomu að rannsóknum á vegum Barnaverndarstofu sem tengjast PMTO.
• Utanumhald og þátttöku í FIMP teymi.
• Stuðning við SMT þjónustusvæði.
• Aðkomu að innleiðingu annarra gagnreyndra aðferða og verklags þegar við á.

Tvær stöður sérfræðinga í PMTO foreldrafærni. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur t.o.m. 28. maí nk.

Hér er auglýsingin á starfatorgi Stjórnarráðsins.

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

Tvær stöður sérfræðinga í PMTO foreldrafærni

Sérfræðingarnir heyra undir sviðsstjóra ráðgjafar- og fræðslusviðs. Um 100% stöður er að ræða sem fela m.a. í sér:
• Samvinnu við sveitarfélög vegna innleiðingar og viðhalds PMTO svæða.
• Aðkomu að skipulagi og framkvæmd menntunar PMTO meðferðaraðila.
• Umsjón með handleiðslu og fræðslu fyrir PMTO sérfræðinga.
• Aðkomu að rannsóknum á vegum Barnaverndarstofu sem tengjast PMTO.
• Utanumhald og þátttöku í FIMP teymi.
• Stuðning við SMT þjónustusvæði.
• Aðkomu að innleiðingu annarra gagnreyndra aðferða og verklags þegar við á.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði.
• Krafa um menntun og reynslu í PMTO meðferð.
• Krafa um þekkingu á notkun mats- og skimunarlista.
• Menntun í PTC hópmeðferð æskileg.
• Þekking og reynsla af FIMP skorun og handleiðslu fyrir PMTO handleiðara æskileg.
• Þekking á SMT skólafærni æskileg.
• Þekking á innleiðingu gagnreyndra aðferða eða verkfæra æskileg.

Starfsstöðin er í Borgartúni 21, Reykjavík.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.

Umsóknarfrestur er framlengdur t.o.m. 28. maí nk.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur, fjármála- og mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, í síma 530-2600 eða gudruns@bvs.is. Umsóknir skulu berast á netfangið bvs@bvs.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica