Fréttir


Gæðastaðlar fyrir vistun eða fóstur barna

28.6.2008

Barnaverndarstofa hefur á sl. vetri unnið að gerð staðla fyrir vistun eða fóstur barna á vegum barnaverndaryfirvalda. Nú er vinnu þessari lokið og staðlarnir tilbúnir. Staðlarnir eru árangur samstarfsverkefnis yfir 30 Evrópuríkja og tók Barnaverndarstofa virkan þátt í því starfi. Athygli er vakin á því að staðlarnir byggja á frásögnum barna á stofnunum, barna í fóstri, kynforeldra, fósturforeldra og starfsfólks á stofnunum sem veittu ómetanlega innsýn í reynsluheim barna sem vistast utan heimilis. Staðlarnir sem Barnaverndarstofa gefur út nú eru ætlaðir til að skilgreina kröfur um verklag, bæta gæði umönnunar og meðferðar og treysta öryggi og rétt barna sem vistuð eru utan heimilis á Íslandi.

Hér má sjá staðlana

Þetta vefsvæði byggir á Eplica