Fréttir


Foster-Pride námskeið hefst í september

16.8.2010

Foster Pride námskeið fyrir verðandi og starfandi fósturforeldra hefst 4. september nk. og stendur til 22. október. Skilyrði til þátttöku er að viðkomandi hafi sótt um leyfi til Barnaverndarstofu og hafi samþykki barnaverndarnefndar í heimilisumdæmi sínu sem fósturforeldri. Fullt er á námskeiðið en tekið er á móti skráningu á biðlista.

Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um fóstur nr. 804/2004 ber umsækjanda að sækja námskeið á vegum Barnaverndarstofu áður en leyfi er veitt. Markmið með námskeiði er annars vegar að leggja mat á hæfni umsækjanda og hins vegar að veita umsækjanda nauðsynlega þjálfun og undirbúa hann undir hlutverk sitt. Lagðar eru áherslur á 5 megin hæfniskröfur sem eru að geta annast og alið upp barn, þekkja þroskaferli barns og mætt frávikum í því ferli, stuðla að tengslum barns við fjölskyldu þess, geta unnið í teymi og stuðlað að því að barnið myndi traust og þroskandi tengsl við fjölskyldu sem ætlað er að vara til frambúðar.

Næsta námskeið verður haldið í febrúar 2011. Þeir sem hafa áhuga að skrá sig á það námskeið vinsamlegast hafið samband við Ingibjörgu A. Snævarr á inga@bvs.is.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica