Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda!
Tilkynningum fjölgar um fimm prósent fyrstu 6 mánuði 2013 miðað við fyrstu 6 mánuði 2012
Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um tæplega 5% fyrstu sex mánuði ársins 2013 samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2012. Fjöldi tilkynninga var 4.264 fyrstu sex mánuði ársins 2013, en 4.066 fyrir sama tímabil árið á undan.
Fleiri tilkynningar bárust um drengi en stúlkur, en hlutfall tilkynninga vegna drengja var 53,9% fyrst sex mánuði ársins 2013. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um rúmlega 2% en fjölgunin var rúmlega 11% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.
Flestar tilkynningar voru vegna vanrækslu eða 36,6% tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2013. Fyrir sama tímabil árið á undan voru flestar tilkynningar vegna áhættuhegðunar barns eða 40,5%. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu sex mánuði ársins 2013 var 26,9%, en 23,4% fyrir sama tímabil árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu hækkaði úr 0,5% fyrstu sex mánuði ársins 2012 í 0,8% fyrstu sex mánuði ársins 2013.
Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 44 umsókn um MST fyrstu sex mánuði ársins 2013, sem er fjölgun frá árinu á undan, en þá bárust 31 umsókn fyrir sama tímabil. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.
Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu sex mánuði ársin 2013 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 29 fyrstu sex mánuði ársins 2013 en 38 fyrir sama tímabil árið á undan.
Umsóknum um fósturforeldra fjölgaði úr 57 í 74 á umræddu tímabili. Fjölgunin var mest í umsóknum um tímabundið fóstur.